Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eimskipafélag Íslands AGM Information 2022

Mar 7, 2022

2194_rns_2022-03-07_b52f9ee2-de72-4258-9994-1dda9e30c340.html

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Eimskip: Frambjóðendur til stjórnar og endanleg dagskrá aðalfundar 2022

Eimskip: Frambjóðendur til stjórnar og endanleg dagskrá aðalfundar 2022

Meðfylgjandi eru upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar félagsins sem kosnir verða á aðalfundinum 17. mars 2022. Framboðsfrestur er útrunninn. Samkvæmt samþykktum félagsins kýs aðalfundur fimm menn í stjórn og tvo til vara og er því sjálfkjörið. Upplýsingar um frambjóðendur eru hjálagt.

Engar breytingar urðu frá áður birtri dagskrá og tillögum fundarins. Endanleg dagskrá og tillögur fundarins eru hjálagt.

Aðalfundur Eimskipafélags Íslands hf. verður haldinn rafrænt og að Sundabakka 2, Reykjavík, fimmtudaginn 17. mars 2022 og hefst kl. 16:30.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, þurfa að skrá sig á vefsíðu Lumi eigi síðar en kl. 12.00 þann 16. mars, eða degi fyrir fundardag. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af lögmætum skilríkjum (vegabréf eða ökuskírteini) og umboð í tilviki lögaðila. Skráning hjá Lumi er skilyrði fyrir þátttöku í fundarstörfum og miðast mæting við hana hvort sem hluthafar eru á staðnum eða taka þátt með Lumi.

Öll gögn fundarins eru aðgengileg á vefsíðu aðalfundar 2022

Viðhengi: