AI assistant
Eimskipafélag Íslands — AGM Information 2021
Mar 3, 2021
2194_rns_2021-03-03_41c72a20-57fe-4759-aa4c-7177045209c7.pdf
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
Aðalfundur
Eimskipafélags Íslands hf.
Aðalfundur Eimskipafélags Íslands hf. verður haldinn fimmtudaginn 25. mars 2021
kl. 16:00 í fundarsalnum Gullteig á Grand hôtel, Sigtúni 28, 105 Reykjavík.
DRÖG AÐ DAGSKRÁ
- Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess á liðnu starfsári
- Staðfesting ársreiknings fyrir síðastliðið reikningsár
- Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar á reikningsárinu 2020
- Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutum
- Tillaga um lækkun hlutafjár vegna kaupa á eigin hlutum skv. endurkaupaáætlun
- Tillaga um heimild til lækkunar hlutafjár
- Tillaga um starfskjarastefnu félagsins
- Kosning stjórnar félagsins
- Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna, varamanna og undirnefnda stjórnar
- Kosning endurskoðenda
- Önnur mál, löglega upp borin
REGLUR UM ÞÁTTTÖKU OG ATKVÆÐAGREIÐSLU Á FUNDINUM
Hluthafar eiga rétt á að fá mál sett á dagskrá, leggja fram ályktunartillögur og spyrja spurninga, með skriflegum eða rafrænum hætti. Kröfu þar um skal fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun sem berast skal stjórn félagsins eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, fyrir kl. 16:00 þann 15. mars 2021. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á vefsíðu félagsins: www.eimskip.com/investors
Eitt atkvæði fylgir hverjum hlut í félaginu að frádregnum eigin hlutum sem eru án atkvæðisréttar. Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað. Hluthöfum sem ekki sækja aðalfund stendur til boða að kjósa um dagskrármál með skriflegum hætti eða veita umboð. Ekki verður unnt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum.
Eigi síðar en fimm dögum fyrir aðalfund þarf beiðni hluthafa um að kjósa með skriflegum hætti að berast félaginu. Hluthafar geta fengið atkvæðaseðla senda til sín, en einnig má nálgast þá í höfuðstöðvum félagsins þar sem greiða má atkvæði alla virka daga milli kl. 9:00 og 16:00. Atkvæðin skulu berast félaginu fyrir aðalfundinn. Hluthafar geta veitt skrifleg umboð að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Slik umboð skulu berast félaginu áður en aðalfundur hefst eða við skráningu á fundarstað. Nánari upplýsingar um atkvæðareglur og notkun umboða er að finna á vefsíðu félagsins: www.eimskip.com/investors
AÐRAR UPPLÝSINGAR
Athygli hluthafa er vakin á því að tilhögun fundarhalda verður í samræmi við gildandi sóttvarnarreglur á aðalfundardegi og ákvæði hlutafélagalaga um hluthafafundi. Ef breyta þarf tilhögun fundarhalda verður tilkynnt um það í fréttakerfi Nasdaq Iceland eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir aðalfund.
Í samræmi við núgildandi reglur verður þáttaka allra fundarmanna skráð, öllum fundarmönnum ber að nota andlitsgrimu og tryggt verður að fjarlægð milli ótengdra aðila sé meiri en 1 metri.
Skjól sem lögð verða fyrir aðalfund er að finna á vefsíðu félagsins: www.eimskip.com/investors
Hluthöfum stendur einnig til boða að nálgast skjólin í höfuðstöðvum félagsins að Sundabakka 2, 104 Reykjavík, virka daga milli kl. 9:00 og 16:00.
Endanleg dagskrá og tillögur stjórnar verða birtar tveimur víkum fyrir fundinn. Berist tillögur frá hluthöfum verða þær birtar a.m.k. þremur dögum fyrir fundinn ásamt uppfærðri dagskrá. Samkvæmt 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995 skal tilkynna um framboð til stjórnar skriflega minnst tiu dögum fyrir aðalfund, eða fyrir kl. 16:00 þann 15. mars 2021. Framboðstilkynningu má nálgast á skrifstofu félagsins. Upplysingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá kl. 15:30 á aðalfundardegi.
Reykjavík, 3. mars 2021
Stjórn Eimskipafélags Íslands hf.
Sundabakki 2 | 104 Reykjavík | +354 525 7000 | eimskip.com
EIMSKIP