AI assistant
Eimskipafélag Íslands — AGM Information 2021
Mar 24, 2021
2194_rns_2021-03-24_5430783d-6616-446a-80f1-a417106d0030.html
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
Eimskip: Breytt framkvæmd aðalfundar
Eimskip: Breytt framkvæmd aðalfundar
Aðalfundur Eimskipafélags Íslands hf. verður haldinn fimmtudaginn 25. mars kl. 16:00.
Fundurinn verður ekki haldinn á Grand Hótel eins og áður hafði verið kynnt, heldur sendur út gegnum fjárfestasíðu félagsins www.eimskip.com/investors með sama hætti og Aðalfundurinn 2020. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundur hefst. Upptaka verður einnig aðgengileg á fjárfestasíðunni að aðalfundi loknum.
Þessi breyting er ákveðin í ljósi þess að Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið, í samræmi við tillögu sóttvarnarlæknis, að takmarka samkomur enn frekar en áður vegna hraðari útbreiðslu Covid-19 í samfélaginu. Fundir þar sem fleiri en 10 manns koma saman eru bannaðir. Eimskip er mikilvægt fyrirtæki i flutningaþjónustu og þarf á þessum fordæmalausum tímum að tryggja virkni flutningakeðjunnar og þjónustu við viðskiptavini og landsmenn alla. Vegna þessa biður stjórn félagsins hluthafa um að mæta ekki á fundinn heldur kjósa fyrirfram og skriflega um tillögur fundarins og veita fundarstjóra umboð til að kjósa á fundinum fyrir sína hönd.
Skrifleg fyrirfram kosning
Atkvæðaseðill með umboði er hjálagt og aðgengilegur á heimasíðu félagsins: https://www.eimskip.com/investors/publications/shareholder-meetings/annual-general-meeting-2021/
Frestur hluthafa til að kjósa skriflega hefur verið lengdur. Atkvæðaseðlar, undirritaðir, dagsettir og með undirritun tveggja vitundarvotta skal skanna og senda félaginu gegnum [email protected] eigi síðar en kl. 14:00 þann 25. mars 2021.
Allar nánari upplýsingar veita:
Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á [email protected]
Davíð Ingi Jónsson, regluvörður í síma 825-7210 eða [email protected]
Viðhengi: