Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Eik fasteignafélag Proxy Solicitation & Information Statement 2018

Mar 19, 2018

2193_rns_2018-03-19_36530707-2f17-4637-9db3-dc4af58726f7.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

GILDI

Eik fasteignafélag hf.
Álfheimum 74
104 Reykjavík

Reykjavík, 16. mars 2018

Ályktunartillaga á aðalfundi Eikar fasteignafélags hf. 2018 vegna umræðu um tilnefningarnefnd

Á dagskrá aðalfundar félagsins, undir liðnum önnur mál, er tilnefningarnefnd til umræðu samkvæmt dagskrá aðalfundarins.

Gildi-lífeyrissjóður telur að það geti verið góður kostur að kanna nánar þann möguleika að koma á fót tilnefningarnefnd innan félagsins. Gildi telur af þeim sökum rétt að fela stjórn félagsins undirbúning og nánari útfærslu á fyrirkomulagi tilnefningarnefndar hjá félaginu sem hluthafar taki síðan endanlega afstöðu til. Af þessum sökum er lögð til eftirfarandi ályktunartillaga á aðalfundinum:

„Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. ályktar að fela stjórn félagsins að undirbúa að koma á fót tilnefningarnefnd innan félagsins í samræmi við leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja, útgefnar af Viðskiptaráði Íslands, Nasdaq Iceland og Samtökum atvinnulífsins. Tillaga stjórnar að fyrirkomulagi tilnefningarnefndar hjá félaginu og starfsreglur fyrir hana skal borin undir hluthafafund til samþykktar sem halda skal á árinu 2018. Miða skal við að fulltrúar í tilnefningarnefnd séu kosnir með beinni kosningu á hluthafafundi, nema hluthafafundur samþykki það fyrirkomulag að stjórn skipi einn stjórnarmann í nefndina.“

Verði breytingartillaga þessi samþykkt væri stjórn félagsins unnt að boða til hluthafafundar síðar á þessu ári þar sem gert væri ráð fyrir því að hluthafafundur taki afstöðu til þess á grundvelli nánar útfærðrar tillögu hvort taka skuli upp tilnefningarnefnd hjá félaginu. Yrði slík tillaga samþykkt væri æskilegt að tilurð og vinna tilnefningarnefndar myndi nýtast hluthöfum við stjórnarkjör á aðalfundi félagsins á árinu 2019.

Virðingarfyllst,

f.h. Gildis-lífeyrissjóðs

Árni Guðmundsson

Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri

Lífeyrissjóður

[email protected]

515 4700

www.gildi.is