Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Brim Seafood Proxy Solicitation & Information Statement 2023

Mar 1, 2023

2192_rns_2023-03-01_0b1cf02f-6708-48ae-b818-f301761c7ea7.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

BRIM

Aðalfundur Brims hf.

  1. mars 2023

Aðalfundur Brims hf. verður haldinn fimmtudaginn 23. mars 2023
með rafrænum hætti auk þess sem hluthöfum gefst kostur á að mæta
til fundarins en fundurinn fer fram í matsal félagsins að Norðurgarði 1,
101 Reykjavík klukkan 17:00. Fundurinn fer fram á íslensku.

DAGSKRÁ

  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina síðastliðið ár.
  2. Endurskoðaður ársreikningur lagður fram til staðfestingar.
  3. Tillaga stjórnar um greiðslu arðs.
  4. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu.
  5. Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna.
  6. Kosning stjórnar félagsins.
  7. Kosning endurskoðenda.
  8. Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin bréfum.
  9. Önnur mál, löglega upp borin.

Atkvæðagreiðsla á fundinum mun alfarið fara fram með rafrænum hætti
í gegnum Lumi AGM

Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðin
mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef hann gerir um það skriflega eða
rafræna kröfu til félagsstjórnar á netfangið [email protected] með það
löngum fyrirvara að unnt sé að taka
málið á dagskrá fundarins, 10 dögum
fyrir fundinn. Pannig skulu óskir
hluthafa liggja fyrir eigi síðar en kl.
17:00 mánudaginn 13. mars 2023.

Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr.
hlutafélagalaga skal tilkynna skriflega,
minnst fimm dögum fyrir hluthafa-
fund, um framboð til stjórnar. Fram-
boðum skal skila á skrifstofu félagsins,
Norðurgarði 1 eða á netfangið
[email protected]. Tilkynnt verður
um framkomin framboð tveimur
dögum fyrir aðalfundinn.

Boðið verður upp á fullgilda raf-
ræna þátttöku á fundinum í gegnum
Lumi AGM án þess að hluthafar séu
viðstaddir á fundarstað skv. ákvæðum
í gr. 4.4 í samþykktum félagsins. Hægt
verður að fylgjast með fundinum í
gegnum vefstreymi auk þess sem
hluthafar geta kosið rafrænt og borið
upp skriflegar spurningar í gegnum
Lumi snjallforritið eða á vefslðu Lumi.
Rafræn þátttaka jafngildir mætingu
á fundinn og veitir rétt til þátttöku í
honum að öðru leyti.

Atkvæðagreiðsla á fundinum mun
alfarið fara fram í gegnum Lumi AGM.
Allir hluthafar, hvort sem þeir mæta til
fundarins í Norðurgarði eða taka þátt
með rafrænum hætti, eru hvattir til
að hlaða niður småforriti Lumi AGM í
eigin snjalltæki, en jafnframt geta þeir
greitt atkvæði í gegnum vefslóð Lumi
AGM.

Aðilar sem eru eignaskráðir hluthafar
í hlutaskrá skv. hluthafakerfi félagsins
þegar aðalfundur fer fram geta beitt
réttindum sínum á aðalfundi.
Hluthafar geta látið umboðsmann
sækja fundinn fyrir sína hönd.
Umboðsmaður skal leggja fram
skriflegt og dagsett umboð, en form
að umboði er aðgengilegt á vefslðu
félagsins. Tekið skal fram að umboð
getur aldrei gilt lengur en í eitt ár frá
dagsetningu þess.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa
sem hafa hug á því að sækja fundinn,
hvort sem er rafrænt eða á staðnum,
eru beðnir um að skrá sig tímanlega
á vefslðunni www.lumiconnect.com/
meeting/brim2023 eigi síðar en kl.
17.00 þann 22. mars, eða degi fyrir
fundardag. Með innskráningu þarf að
fylgja mynd af skilrikjum og umboð, ef
við á.

Hluthöfum stendur jafnframt til
boða að kjósa um dagskrármál með
skriflegum hætti eða veita umboð. Á
vefslðu félagsins má finna viðeigandi
eyðublöð.

Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði
hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf
félagsins njóta ekki atkvæðisréttar.

Heildarhlutafé félagsins nemur kr.
1.955.979.606 og fylgir eitt atkvæði
hverjum hlut. Eigin bréf félagsins
eru nú kr. 30.532.917 og virkt hlutafé
félagsins því 1.925.446.689.

Dagskrá og öll skjöl sem lögð verða
fyrir aðalfundinn, þ.m.t. ársreikningur
félagsins og tillögur eru hluthöfum
tiltæk á íslensku, á heimasiðu félagsins
og á skrifstofu þess á venjulegum
skrifstofutíma. Endanleg dagskrá og
tillögur verða birtar viku fyrir fundinn.

Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn
má finna á vefslðu félagsins
https://www.brim.is/is/fjarfestar/
adalfundur/

Reykjavík 1. mars 2023
Stjórn Brims hf.