Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Brim Seafood Proxy Solicitation & Information Statement 2023

Mar 16, 2023

2192_rns_2023-03-16_5c34832d-a48a-4713-9edb-5c8b68d9530f.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Lifeyrissjóður verzlunarmanna

Stjórn Brims hf.
V.t. Kristján Þ. Davíðsson, formaður stjórnar
Norðurgarður 1
101 Reykjavik

Reykjavík, 16. mars 2023

Efni: Breytingartillaga vegna aðalfundar Brims hf. 23. mars 2023

Með vísan í kauphallartilkynningu um aðalfund Brims hf. dags. 1. mars 2023 óskar Lífeyrissjóður verzlunarmanna („LV“), sem hluthafi, eftir því að eftirfarandi breytingartillaga verði tekin fyrir á dagskrá aðalfundar sem haldinn verður þann 23. mars 2023. Tillaga LV er breytingartillaga við dagskrárlið 8 um heimild félagsins til kaupa á eigin bréfum.

LV gerir það að tillögu sinni að eftirfarandi undirstrikaður texti bætist við núverandi tillögu stjórnar Brims hf.:

„Aðalfundur veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi má eigi vera hærra en í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem hærra er. Heimild þessi skal aðeins nýtt í þeim tilgangi að koma á formlegri endurkaupaáætlun eða til þess að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup félagsins á eigin bréfum. t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum. Aðrar eldri heimildir til kaupa á eigin bréfum falla úr gildi við samþykkt heimildar þessarar.“

Greinargerð með breytingartillögu

Hér er gerð breytingartillaga sem skýrir betur og afmarkar umboð stjórnar til endurkaupa á eigin hlutum félagsins og tryggir um leið eðlilegt jafnræði meðal hluthafa þess. Markmið með ákvæðinu er að setja fram með gagnsæjum hætti hvernig félagið skuli heimilt að ráðstafa fjármunum til hluthafa og er í samræmi við almenna venju á innlendum hlutabréfamarkaði. Sambærilegt ákvæði var samþykkt á aðalfundum Brims hf. á árunum 2016, 2017 og 2019 auk þess sem breytingartillaga LV um sama efni var samþykkt á aðalfundi félagsins 24. mars 2022.

F.h. Lífeyrissjóðs verzlunarmanna

img-0.jpeg

Arne Vagn Olsen
Forstöðumaður eignastýringar

Lífeyrissjóður verzlunarmanna [email protected] 580 4000 Kringlunni 7, 103 Reykjavík
live.is