AI assistant
Brim Seafood — Earnings Release 2023
May 17, 2023
2192_rns_2023-05-17_ac553f5d-1f38-4502-a4d6-3cc0dfc25833.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Uppgjör Brims hf. á fyrsta ársfjórðungi 2023
BRIM
Fréttatilkynning
Starfsemin á 1F2023
Uppsjávarveiðar skipa Brims hófust í janúar með veiðum á kolmunna í færeyskrí lögsögu en um 19 þús. tonn af kolmunna veiddust og var landað í fiskimjölsverksmiðju félagsins á Vopnafirði. Veiðar á loðnu hófust í byrjun febrúar og gengu veiðar og vinnsla mjög vel. Skipin lönduðu 56 þús. tonnum í vinnslur félagsins á Akranesi og Vopnafirði og náðist að veiða allan kvóta félagsins auk þess að um 6 þús. tonna afli var keyptur af þriðja aðila. Það skipti sköpmum að veður var með eindæmum gott til loðnuveiða á tímabilinu og munaði miklu frá því sem var á árinu 2022, þegar vertiðin einkenndist af stöðugum brælum. Loðnunni var landað til heilfrystingar fyrir markaði í Asíu og A-Evrópu, til frystingar á loðnuhrognum og til framleiðslu á fiskimjöl og lýsi. Mikil óvissa ríkti um hversu stór loðnukvótinn yrði á vertiðinni og var endanlegur loðnukvóti ekki ljós fyrr en 15. febrúar og olli það vandræðum með skipulagningu veiðanna og vinnslu aflans. Óvissa af þessu tagi leiðir til þess að veiðum er frestað til að tryggja að nægar veiðheimildir séu eftir til veiða á hinni verðmætu hrognaloðnu. Met var sett í framleiðslu á loðnuhrognum á Íslandi og framleiðslan því umfram það sem selst öllu jafna innan árs sem hafði þær afleiðingar að verð loðnuhrogna lækkaði.
Bolfiskveiðar og vinnsla félagsins gengu vel, að undanskildum veiðum á ufsa sem brást á tímabilinu, og veiddu skip félagsins um 10 þús. tonn af bolfiski. Veiði frystiskipa félagsins í Barentshafi gengu vel á tímabilinu og voru þær aðeins yfir því sem hafði verið á árinu 2022. Afurðaverð á landunnum bolfiskafurðum hækkaði nokkuð samanborið við sama tímabil í fyrra, en á móti gaf verð á sjófrystum borsk- og ýsuafurðum nokkuð eftir frá því sem var á sama tímabili í fyrra.
Helstu atriði úr fjárhagsuppgjóri 1F 2023
- Vörusala var 113 m€ á fjórðungnum samanborið við 94 m€ á fyrsta fjórðungi 2022
- Hagnaður var 19 m€ á fjórðungnum samanborið við 26 m€ á fyrsta fjórðungi 2022
- EBITDA var 29 m€ og EBITDA hlutfall 25,7%
- Eignir hækkuðu um 105 m€ frá áramótum og voru 1.047 m€ í lok tímabilins
- Eigið fé þann 31. mars 2023 var 433 m€ og eignfjárhlutfall 41,4%
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri:
„Gæftir voru góðar á ársfjórðungnum og veiðin var góð, einkum á uppsjávartegundum. Afurðaverð voru almennt góð en kostnaður jafnt við veiðar, vinnslu og sölu jókst. Birgðastaðan er all mikil sem ætti að skila sér í auknum tekjum á næstu fjórðungum.
Bolfiskveiðar gengu ágætlega og skiptir þar miklu að frystiskip félagsins í Barentshafi veiddu mjög vel. Hins vegar lét ufsinn ekki sjá sig og á undanförnum misserum hafa veiðheimildir á þorski og karfa verið skornar niður. Verðin á afurðum voru góð.
Rétt er hins vegar að áréta að aðstæður á mörkuðum eru erfiðar. Það mun því reyna á okkar sölunet og sölu- og markaðsfyrirtæki á næstu misserum. Það geisar enn þá stríð í Evrópu og víða ríkir mikil óvissa. Kostnaðarhækkanir eru alls staðar mjög miklar og verðbólga er meiri en þekkst hefur í áratugi.
Uppgjör Brims hf. á fyrsta ársfjórðungi 2023
BRIM
Fréttatilkynning
Sveiflur í sjávarútvegi, bæði af völdum náttúru og manna nær og fjær, eru miklar og taka ekki tillit til ársfjórðunga. Að því gefnu er óhætt að vera ánægður með þennan fyrsta ársfjórðung ársins. Starfsfólk Brims hefur brugðist við nýjum aðstæðum og erfiðleikum af festu sem endranær sem skilar sér í góðu uppgjóri."
Rekstur
| EUR '000 | 1F 2023 | 1F 2022 |
|---|---|---|
| Seldar vörur | 113.375 | 93.953 |
| Kostnaðarverð seldra vara | (82.959) | (52.353) |
| Vergur hagnaður | 30.416 | 41.600 |
| Útflutningskostnaður | (2.513) | (2.789) |
| Annar rekstrarkostnaður | (3.067) | (6.787) |
| Rekstrarhagnaður | 24.836 | 32.024 |
| Fjáreignatekjur | 1.177 | 869 |
| Fjármagnsgjöld | (3.730) | (1.801) |
| Gengismunur | (779) | 138 |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 2.022 | 1.095 |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 23.526 | 32.325 |
| Tekjuskattur | (4.664) | (5.928) |
| Hagnaður tímabilsins | 18.862 | 26.397 |
| EBITDA | 29.099 | 36.223 |
| EBITDA% | 25,7% | 38,6% |
Seldar vörur námu á 1F 2023 113 m€ samanborið við 94 m€ árið áður. Hækkun vörusölu má einkum rekja til starfsemi sólufélaga í Asíu.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 29 m€ eða 25,7% af rekstrartekjum, en var 36 m€ eða 38,6% árið áður.
Nettó fjármagnskostnaður var 3,3 m€ en var 0,8 m€ á fyrsta fjórðungi 2022.
Hagnaður fyrir tekjuskatt var 24 m€, samanborið við 32 m€ á fyrsta fjórðungi 2022. Tekjuskattur nam 5 m€, en var 6 m€ árið áður. Hagnaður tímabilsins varð því 19 m€ en var 26 m€ árið áður.
Uppgjør Brims hf. á fyrsta ársfjórðungi 2023
BRIM
Fréttatilkynning
Efnahagur
| EUR '000 | 31.03.2023 | 31.12.2022 |
|---|---|---|
| Fastafjármunir | 753.264 | 664.340 |
| Veltufjármunir | 294.191 | 278.547 |
| Eignir samtals | 1.047.455 | 942.887 |
| --- | --- | --- |
| Eigið fé | 433.200 | 452.275 |
| Langtímaskuldir | 213.706 | 214.498 |
| Skammtímaskuldir | 400.549 | 276.114 |
| Eigið fé og skuldir | 1.047.455 | 942.887 |
Héildareignir félagsins námu 1.047m€ í lok 1F 2023. Þar af voru fastafjármunir 753 m€ og veltufjármunir 294 m€. Hækkun á fastafjármunum má einkum rekja til fjárfestingar í Polar Seafood Denmark A/S. Fjárhagsstaða félagsins er áfram sterk og nam eigið fé 433 m€ og var eiginfjárhlutfall 41,4%, en var 48,0% í lok árs 2022. Heildarskuldir félagsins voru 614 m€ í lok fjórðungsins og hækkuðu um 124 m€ frá áramótum. Hækkun skammtímaskulda má bæði rekja til þess að kaupverð eignarhlutans í Polar Seafood Denmark A/S var ógreitt þann 31. mars sem og að an arðurinn var samþykkur á aðalfundi 23. mars og greiddur þann 28. apríl.
Sjóðstreymi
| EUR '000 | 1F 2023 | 1F 2022 |
|---|---|---|
| Handbært fé fá rekstri | 17.317 | 8.763 |
| Fjárfestingarhreýfingar | (6.898) | (3.377) |
| Fjármögnunarhreyfingar | (15.981) | 10.585 |
| Hækkun (lækkun) á handbæru fé | (5.562) | 15.971 |
Handbært fé frá rekstri nam 17 m€ á fyrsta fjórðungi ársins, en var 9 m€ á fyrsta fjórðungi 2022. Fjárfestingarhreýfingar voru 7 m€ og fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar um 16 m€. Handbært fé lækkaði því um 6 m€ og var 156 m€ í lok tímabilsins.
| Handbært fé í lok tímabilsins | 156.413 | 92.860 |
|---|---|---|
Meginniðurstöður færðar til íslenskra króna
Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi fyrsta fjórðungs árins 2023 (1 evra = 152,3 ísk) voru tekjur 17,3 milljarðar króna, EBITDA 4,4 milljarðar og hagnaður 2,9 milljarðar. Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á gengi 31. mars 2023 (1 evra = 148,3 ísk) voru eignir samtals 155,3 milljarðar króna, skuldir 91,1 milljarðar og eigið fé 64,2 milljarðar.
Hluthafar
Lokaverð hlutabréfa 31. mars 2023 var 86,5 kr. á hlut og var markaðsvirði félagsins þá 167 milljarðar króna. Fjöldi hluthafa var 1.920.
Uppgjör Brims hf. á fyrsta ársfjórðungi 2023
BRIM
Fréttatilkynning
Sambykkt árshlutareiknings
Árshlutareikningurinn var sambykktur á stjórnarfundi Brims hf. 17. maí 2023. Árshlutareikningurinn er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS – International Financial Reporting Standards). Árshlutareikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins.
Ekki verður haldinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta fyrir þriggja og níu mánaða uppgjör líkt og verið hefur. Næsti kynningarfundur verður haldinn eftir sex mánaða uppgjör félagsins. Fjárfestadagur verður haldinn 7. september 2023.
Brim hf.
Brim er öflugt sjávarútvegsfyrirtæki sem starfar í sátt við samfélagið og umhverfið. Við stuðlum að verðmætaskópun í sjávarútvegi með vöruþróun, tæknilausnum og öflugu starfsfólki. Við tryggjum með ábyrgum veiðum og vinnslu, þar sem áhersla er á sjálfbærni og nýskópun, að sjávarútvegur verði áfram burðarstólpi í íslensku samfélagi. Við leitum allra leiða til að lágmarka áhrif starfseminnar á umhverfið hvort sem er á sjó eða í landi.
Fjárhagsdagatal
| Annar ársfjórðungur | 24. ágúst 2023 |
|---|---|
| Þriðji ársfjórðungur | 16. nóvember 2023 |
| Fjórði ársfjórðungur | 22. febrúar 2024 |
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Kristjánsson forstjóri, sími 550-1000.