Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Brim Seafood Earnings Release 2021

Nov 18, 2021

2192_rns_2021-11-18_29ba63a4-e9e7-442a-846c-7d281c0d073b.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Uppgjör Brims á þriðja ársfjórðungi 2021

Uppgjör Brims á þriðja ársfjórðungi 2021

Stjórn Brims hf. hefur samþykkt árshlutareikning samstæðunnar fyrir fyrstu 9 mánuði ársins 2021. Árshlutareikningurinn er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla.

Góður og stöðugur rekstur á þriðja ársfjórðungi

  • Rekstur ársfjórðungsins var stöðugur og sambærilegur við sama ársfjórung síðasta árs.  Salan nam 91,6 milljónum evra í samanburði við 80,7 milljónir evra á sama tíma 2020.
  • EBITDA fjórðungsins lækkar lítillega milli tímabila eða um 0,8 milljónir evra.
  • Hagnaður fjórðungsins eykst milli ára og er 19,9 milljónir evra samanborið við 16,0 milljónir evra á þriðja fjórðungi ársins 2020. Grunnrekstur er í takt við sama tímabil 2020 en munurinn liggur í söluhagnaði skips.
  • Rekstur botnfisksviðs gekk mjög vel á fjórðungnum og góð aflabrögð hafa verið í botnfiski og staða á mörkuðum góð. Á sama tíma var sóknin erfið á  makrílvertíðinni og einnig  hófust síldveiðar seinna en á árinu 2020.
  • Efnahagur félagsins er sterkur. Eignir eru um 772 milljónir evra og eiginfjárhlutfallið 47%.

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri:

„Afkoma fjórðungsins er góð og ég er ánægður með hversu stöðugur reksturinn er orðinn. Undanfarin misseri höfum við markvisst fjárfest í botnfisksaflaheimildum og nýrri tækni sem er að skila árangri í dag. Eins sjáum við að fjárfestingar í sölufélögunum styrkja viðskiptalíkanið okkar.

Loðnuvertíð er framundan og er þetta mesta magn loðnukvóta frá árinu 2003.  Við þessa aukningu í úthlutun fór Brim yfir hámarkshlutdeild í þorskígildum.

Fjárhagsdagatal

Fjórði ársfjórðungur                24. febrúar 2022

Kynningarfundur og nánari upplýsingar

Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn fimmtudaginn 18. nóvember næstkomandi og hefst kl. 16:30, þar mun Guðmundur Kristjánsson forstjóri félagsins kynna uppgjör fjórðungsins.

Fundurinn verður eingöngu rafrænn og hægt verður að fylgjast með fundinum á www.brim.is/streymi. Velkomið er að senda spurningar fyrir fundinn eða á meðan fundi stendur á netfangið [email protected]. Spurningum verður svarað í lok fundar.

Nánari upplýsingar veitir Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri samfélagsábyrgðar, nýsköpunar og fjárfestatengsla í síma 781-8282 eða [email protected]

Brim hf.

Brim er öflugt sjávarútvegsfyrirtæki sem starfar í sátt við samfélagið og umhverfið. Við stuðlum að verðmætasköpun með vöruþróun, tæknilausnum og öflugu starfsfólki. Við tryggjum með ábyrgum veiðum og vinnslu, þar sem áhersla er á sjálfbærni og nýsköpun, að sjávarútvegur verði áfram burðarstólpi í íslensku samfélagi. Við leitum allra leiða til að lágmarka áhrif starfseminnar á umhverfið hvort sem er á sjó eða í landi.

Viðhengi: