Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Brim Seafood AGM Information 2021

Mar 3, 2021

2192_rns_2021-03-03_7ca10d2c-0043-46fa-95b5-ccf8eefbeaa4.pdf

AGM Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

ADALFUNDARBOD

BRIM

Aðalfundur Brims hf. verður haldinn fimmtudaginn 25. mars 2021
á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík.

Gætt verður að gildandi fyrirvörum stjórnvalda um fjöldatakmarkanir, nálægðarmörk og sóttvarnir, en jafnframt verður gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum.

Fundurinn fer fram á íslensku og hefst klukkan 17:00.

DAGSKRÁ

  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina síðastliðið ár.
  2. Endurskoðaður ársreikningur lagður fram til staðfestingar.
  3. Tillaga stjórnar um greiðslu arðs.
  4. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu.
  5. Ákvörðun um þöknun stjórnarmanna.
  6. Kosning stjórnar félagsins.
  7. Kosning endurskoðenda.
  8. Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin bréfum.
  9. Önnur mál, löglega upp borin.

Atkvæðagreiðsla á fundinum mun alfarið fara fram með rafrænum hætti í gegnum Lumi AGM

Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðin mál
tekin til meðferðar á hluthafafundi ef
hann gerir um það skriflega eða
rafræna kröfu til félagsstjórnar á net-
fangið [email protected] með það
löngum fyrirvara að unnt sé að taka
málið á dagskrá fundarins, 10 dögum
fyrir fundinn. Þannig skulu öskir
hluthafa liggja fyrir eigi síðar en kl.
17:00 mánudaginn 15. mars 2021.

Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr.
hlutafélagalaga skal tilkynna skriflega,
minnst fimm dögum fyrir hluthafa-
fund, um framboð til stjórnar. Fram-
boðum skal skila á skrifstofu Brims,
Norðurgarði 1 eða á netfangið
[email protected]. Tilkynnt verður um
framkomin framboð tveimur dögum
fyrir aðalfundinn.

Boðið verður upp á fullgilda rafræna
þátttöku á fundinum í gegnum Lumi
AGM án þess að hluthafar séu
viðstaddir á fundarstað. Hægt verður
að fylgjast með fundinum í gegnum
vefstremi auk þess sem hluthafar geta
kosið rafrænt og borið upp skriflegar
spurningar í gegnum Lumi snjallforritið
eða vefsíðu Lumi. Rafræn þátttaka

jafngildir mætingu á fundinn og veitir
rétt til þátttöku í honum að öðru leyti.

Atkvæðagreiðsla á fundinum mun
alfarið fara fram í gegnum Lumi AGM.
Allir hluthafar, hvort sem þeir mæta
til fundarins á Hôtel Nordica eða taka
þátt með rafrænum hætti, eru hvattir
til að hlaða niður småforriti Lumi AGM
í eigin snjalltæki, en jafnframt geta þeir
greitt atkvæði í gegnum vefslóð Lumi
AGM.

Aðilar sem eru eignaskráðir hluthafar
í hlutaskrá skv. hluthafakerfi félagsins
þegar aðalfundur fer fram geta beitt
réttindum sínum á aðalfundi. Hluthafar
geta látið umboðsmann sækja fundinn
fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal
leggja fram skriflegt og dagsett
umboð, en form að umboði er
aðgengilegt á vefsíðu félagsins. Tekið
skal fram að umboð getur aldrei gilt
lengur en í eitt ár frá dagsetningu þess.

Hluthafar eða umboðsmann hluthafa
sem hafa hug á því að sækja fundinn,
hvort sem er rafrænt eða á staðnum,
eru beðnir um að skrá sig tímanlega á
fundinn á vefsíðunni

www.smartagm.com og eigi síðar en kl. 17.00 þann 24. mars, eða degi fyrir fundardag. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af skilríkjum og umboð, ef við á.

Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar.

Heildarhlutafé félagsins nemur kr. 1.955.979.606 og fylgir eitt atkvæði hverjum hlut. Eigin bréf félagsins eru nú kr. 34.920.417 og virkt hlutafé félagsins því kr. 1.921.059.189

Dagskrá og öll skjöl sem lögð verða
fyrir aðalfundinn, þ.m.t. ársreikningur
félagsins og tillögur eru hluthöfum
tiltæk á íslensku, á heimasíðu félagsins
og á skrifstofu félagsins á venjulegum
skrifstofutíma. Endanleg dagskrá og
tillögur verða birtar viku fyrir fundinn.

Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn
má finna á vefsíðu félagsins www.brim.is/brim/fjarfestar/adalfundur2021/

Reykjavík 3. mars 2021
Stjórn Brims hf.