AI assistant
Arion Banki — Proxy Solicitation & Information Statement 2020
Mar 14, 2020
2189_rns_2020-03-14_fe7637f7-7fe7-41bd-ba33-794949c83c16.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
EFTIRTALDIR ADILAR ERU Í FRAMBODI TIL STJÓRNAR ARION BANKA Á ADALFUNDI BANKANS SEM HALDINN VERDUR 17. MARS 2020:
Brynjólfur Bjarnason. Brynjólfur er fæddur árið 1946. Hann var fyrst kjörinn í stjórn Arion banka á hluthafafundi 20. nóvember 2014. Hann er ekki hluthafi í bankanum og er óháður frambjóðandi. Brynjólfur er núverandi varaformaður stjórnar í Arion banka, en hefur ekki unnið önnur störf fyrir bankann. Brynjólfur útskrifaðist með MBA-gráðu frá University of Minnesota árið 1973. Hann útskrifaðist með cand.oecon.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1971. Brynjólfur hefur m.a. starfað sem framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands, forstjóri Skipta, forstjóri Símans og sem forstjóri Granda hf. Brynjólfur hefur mikla reynslu af stjórnarsetu og hefur setið í fjölmörgum stjórnum í gegnum tíðina og gegnt stjórnarformennsku í nokkrum þeirra. Í dag situr Brynjólfur sem varamaður í stjórn Ferguson ehf. og stjórnarmaður í Marinvest ehf., ISAL hf. og Leikritunarsjóðs Leikfélags Reykjavíkur.
Herdís Dröfn Fjeldsted. Herdís er fædd árið 1971. Hún var fyrst kjörin í stjórn Arion banka á aðalfundi 15. mars 2018. Herdís er hluthafi í bankanum í gegnum Krummi Kapital ehf. og er óháður frambjóðandi. Herdís er varaformaður stjórnar, formaður endurskoðunarnefndar, situr í starfskjaranefnd stjórnar og tilnefningarnefnd bankans. Herdís er formaður stjórnar Valitor Holding hf., dótturfélags Arion banka og situr í starfskjaranefnd stjórnar Valitor Holding hf. Herdís útskrifaðist með BS-gráðu í viðskiptafræði með áherslu á alþjóðamarkaðssetningu úr Tækniháskóla Íslands árið 2004 og með meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík árið 2011. Herdís er auk þess með próf í verðbréfaviðskiptum. Herdís starfaði sem framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands (FSÍ) frá 2014 en fyrir þann tíma starfaði hún sem fjárfestingarstjóri hjá FSÍ. Áður en hún hóf störf hjá FSÍ starfaði hún sem sérfræðingur í fjárfestingarágjóð hjá Thule Investments. Herdís hefur einnig setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja, m.a. sem stjórnarformaður Icelandic Group og VÍS hf., varaformaður stjórnar Promens og sem stjórnarmaður hjá Icelandair Group, Invent Farma, Medicopack A/S og Copeinca AS. Í dag situr Herdís í stjórnum Valitor Holding hf., Krummi Kapital ehf. og Íslensk-kanadíska viðskiptaráðsins.
Gunnar Sturluson. Gunnar er fæddur árið 1967. Hann var fyrst kjörinn í stjórn Arion banka á hluthafafundi þann 9. ágúst 2019. Hann er ekki hluthafi í bankanum og er óháður stjórnarmaður. Gunnar situr í lánanefnd stjórnar. Gunnar útskrifaðist með Cand.Jur gráðu frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1992, útskrifaðist með LL.M gráðu frá Háskólanum í Amsterdam árið 1995 og hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 1993 og fyrir Hæstarétti Íslands árið 1999. Gunnar starfaði fyrir Málflutningsskrifstofuna árin 1992–1999 og var meðeigandi stofunnar frá 1995. Hann hefur starfað hjá LOGOS lögmannsþjónustu frá árinu 2000 sem meðeigandi og starfaði sem faglegur framkvæmdastjóri 2001–2013. Gunnar sinnti stundakennslu í samkeppnisrétti við lagadeild Háskóla Íslands 1995–2007. Gunnar hefur sinnt ýmsum stjórnarstörfum og var meðal annars stjórnarmaður í GAMMA hf. 2017–2019, stjórnarformaður Ríkisútvarpsins ohf. 2016–2017, var stjórnarmaður í gerðardómi Víðskiptaráðs Íslands, forseti FEIF, alþjóðasamtaka Íslandshestafélaga frá 2014, stjórnarformaður Íslenska dansflokksins 2013–2016 og kjörinn í landskjörstjórn af Alþingi 2013–2017.
Liv Fiksdahl. Liv er fædd árið 1965. Hún er ekki hluthafi í bankanum og er óháður frambjóðandi. Liv var kjörin í stjórn bankans á aðalfundi 20. mars 2019 en jafnframt situr hún í starfskjaranefnd stjórnar. Liv útskrifaðist með gráðu í fjármálum og stjórnun frá Trondheim Business School árið 1986 og hefur lokið námi í English for Management frá BI Norwegian Business School. Árið 2018 kláraði Liv Programs in Big Data-Strategic Decisions and Analysis, The Innovative Technology Leader and Design Thinking frá Stanford University og Advanced Management Program for Executives in Management, Innovation and Technology
frá Massachusetts Institute of Technology. Årið 2019 lauk Liv International Directors Programme frá INSEAD. Liv gegndi áður ýmsum störfum hjá DNB, m.a. sem aðstoðarframkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs/rekstrarsviðs (e. Group EVP, CIO/COO) frá 2013 til 2019 og sem aðstoðarframkvæmdastjóri rekstarsviðs (Group EVP, COO and Operations) frá 2007 til 2012. Hún starfaði jafnframt sem deildarstjóri og stjórnandi á þjónustusviði hjá DnB NOR frá 2003 til 2007. Þá hefur Liv m.a. starfað hjá DnB/Gjens.NOR og Gjensidige NOR sem Program Manager, starfsmannstjóri og sem viðskiptastjóri. Liv hefur setið í fjölmörgum stjórnum, m.a. hjá BankAxept, Sparebankforeningen, Doorstep, Finans Norge og bæjarstjórn sveitarfélagsins Þrándheimi. Í dag starfar Liv sem aðstoðarforstjóri innan fjármálþjónustu hjá Capgemini Invent í Noregi og situr í stjórn Scandinavian Airlines SAS AB, Posten Norge AS og Intrum AB.
Paul Richard Horner. Paul er fæddur árið 1962. Hann er ekki hluthafi í bankanum og er óháður frambjóðandi. Hann var fyrst kjörinn í stjórn Arion banka á hluthafafundi þann 9. ágúst 2019. Paul útskrífáðist með meistaragráðu í tónlist frá University of Oxford árið 1983. Hann hefur jafnframt lokið Advanced Credit Training Programme hjá RBS Global Banking & Markets og er félagi í UK Chartered Institute of Bankers. Paul starfaði hjá Barclays PLC frá árinu 1988 til 2003, m.a. sem framkvæmdastjóri áhættustýringar, svæðisstjóri, forstöðumaður fyrirtækjalána og forstöðumaður birgðastjórnunar. Árið 2003 hóf Paul störf hjá The Royal Bank of Scotland Group (RBS) og hefur m.a. starfað sem framkvæmdastjóri áhættustýringar og síðar forstjóri hjá Coutts International, forstöðumaður áhættustýringar alþjóðaviðskipta hjá RBS Non-Core Division og sem framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá ABN Amro, Europe & Middle East, Commercial & Consumer. Paul var framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá Ulster Bank DAC, Dublin, og er í dag stjórnarmaður í Allied Irish Banks UK og Coutts & Co Ltd í Zurich.
Renier Lemmens. Renier er fæddur árið 1964. Hann er ekki hluthafi í bankanum og er óháður frambjóðandi. Hann var fyrst kjörinn í stjórn Arion banka á aðalfundi 20. mars 2019. Renier situr í endurskoðunarnefnd og áhættunefnd stjórnar. Renier á sæti í stjórn Valitor Holding hf., dótturfélags Arion banka, og er formaður áhættu og eftirlitsnefndar stjórnar Valitor Holding hf. Renier er með MBA gráðu frá INSEAD og meistaragráðu í tölvunarfræði frá Delft University of Technology. Renier hefur m.a. starfað sem forstjóri Viadeo SA, var hluthafi hjá Ramphastos Investments, forstjóri (CEO EMEA) hjá PayPal, forstjóri Amodo Consumer Finance, framkvæmdastjóri rekstarsviðs International Retail & Commercial Banking hjá Barclays Bank og sem Consumer Finance Officer hjá GE Capital ásamt því að hafa starfað hjá McKinsey & Company. Þá hefur Renier setið í fjölmörgum stjórnum, m.a. Zenith Bank Ltd., Novum Bank Ltd. sem formaður stjórnar, ZA Life Assurance NV, First Caribbean International Bank og sem formaður stjórnar og forstjóri Budapest Bank. Í dag starfar Renier sem prófessor í fjármálatækni og nýsköpun (e. FinTech and Innovation) hjá London Institute of Banking and Finance og er stjórnarformaður í Revolut, TransferGo og Divido.
Steinunn Kristín Þórðardóttir. Steinunn er fædd árið 1972. Hún var fyrst kjörin í stjórn Arion banka á hluthafafundi 30. nóvember 2017. Steinunn er ekki hluthafi í bankanum og er óháður frambjóðandi. Steinunn er núverandi stjórnarmaður í Arion banka en hefur ekki unnið önnur störf fyrir bankann. Steinunn er með meistaragráðu í alþjóðlegri stjórnun (e. Master's degree in International Management – MIM) frá Thunderbird, Arizona og BA-gráðu í alþjóðaviðskiptum og stjórnmálárfæði frá University of South Carolina. Steinunn starfaði áður sem framkvæmdastjóri hjá Beringer Finance í Noregi auk þess að gegna stöðu forstöðumanns alþjóðadeildar fyrirtækisins á sviði matvæla og sjávarfangs. Þá stofnaði Steinunn ráðgjafarfyrirtækið Akton AS í Noregi 2010 og var framkvæmdastjóri þess til 2015. Hún starfaði áður hjá Íslandsbanka (síðar Glitni), fyrst sem forstöðumaður alþjóðalánveitinga og síðar sem framkvæmdastjóri
bankans í Bretlandi. Steinunn sat áður í stjórn Silver Green AS og Silver Green TC AS í Noregi, Versobank AS í Eistlandi, stjórn Bankasýslu ríkisins og sem varamaður í stjórn Kredittbanken, síðar Glitnir Norway. Í dag er Steinunn stjórnarformaður Acton Capital AS og Akton AS og situr í stjórn Cloud Insurance AS. Hún situr í Norsk-íslenska viðskiptaráðinu og í tilnefningarnefnd Símans.
EFTIRTALDIR AÐILAR ERU Í FRAMBOÐI TIL VARAMANNA Í STJÓRN BANKANS:
Ólafur Örn Svensson. Ólafur er fæddur árið 1972 og var fyrst kjörinn sem varamaður í stjórn bankans á aðalfundi 21. mars 2013. Hann er ekki hluthafi í bankanum og er óháður frambjóðandi. Ólafur er núverandi varamaður í stjórn Arion banka en hefur ekki unnið önnur störf fyrir bankann. Ólafur útskrifaðist sem Cand.jur. árið 2000 frá Háskóla Íslands. Ólafur starfaði áður hjá Lögmönnum Klapparstíg og starfar í dag sem lögmaður og er meðeigandi í Forum Lögmönnum og Tort.
Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir. Sigurbjörg er fædd árið 1970 og var fyrst kjörin sem varamaður í stjórn bankans á aðalfundi 20. mars 2014. Hún er ekki hluthafi í bankanum og er óháður frambjóðandi. Sigurbjörg er núverandi varamaður í stjórn Arion banka en hefur ekki unnið önnur störf fyrir bankann. Sigurbjörg útskrifaðist sem Cand.jur. árið 1996 frá Háskóla Íslands og lauk MA-gráðu í lögfræði frá Cambridge University árið 1997. Sigurbjörg starfaði áður hjá Innanríkisráðuneytinu og NATO en starfar í dag sem framkvæmdastjóri Risk ehf.
Þröstur Ríkharðsson. Þröstur er fæddur árið 1978. Hann er hluthafi í bankanum og er óháður frambjóðandi. Þröstur hefur ekki unnið áður fyrir Arion banka. Þröstur útskrifaðist sem Cand.jur. árið 2003 frá Háskóla Íslands. Þröstur starfaði áður hjá Avant hf. sem forstöðumaður lögfræðiifræðisviðs, hjá AM Kredit ehf. sem forstöðumaður lögfræðiinnheimtu og sem fulltrúi hjá AM Praxis lögfræðiþjónustu. Í dag starfar Þröstur sem yfirlögfræðingur hjá Kaupþingi ehf.