Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Arion Banki M&A Activity 2025

May 27, 2025

2189_rns_2025-05-27_a969f2d7-631d-4349-a0ad-7f19e5ff9c80.html

M&A Activity

Open in viewer

Opens in your device viewer

Arion banki hf. óskar eftir samrunaviðræðum við Kviku banka hf.

Arion banki hf. óskar eftir samrunaviðræðum við Kviku banka hf.

Stjórn Arion banka ákvað á fundi sínum í dag að óska eftir því við stjórn Kviku banka að hafnar verði samrunaviðræður á milli félaganna tveggja. Hefur stjórnarformanni og bankastjóra Kviku banka verið sent bréf þess efnis.

Það er mat stjórnar Arion banka að samruni félaganna myndi skila verulegum verðmætum til hluthafa beggja félaga. Sameining félaganna fæli í sér tækifæri til tekjuaukningar, áhættudreifingar, hagræðingar og lækkunar á fjármögnunarkostnaði. Þannig gæti sameining félaganna aukið skilvirkni á íslenskum fjármálamarkaði sem kæmi viðskiptavinum beggja félaga til góða.

Ákveði stjórn Kviku banka að ganga til samrunaviðræðna er það von Arion banka að viðræður hefjist sem fyrst. Tillaga stjórnar Arion banka er að við ákvörðun skiptihlutfalls verði horft til markaðsverðs félaganna, eftir atvikum að teknu tilliti til gengisþróunar á tímabili sem stjórnir félaganna koma sér saman um.

Bréf stjórnar Arion banka til stjórnar Kviku banka er meðfylgjandi.

Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:


Theodórs Friðbertssonar, fjárfestatengsl Arion banka, [email protected], s. 856 6760 eða Haraldar Guðna Eiðssonar, forstöðumanns samskiptasviðs, [email protected], s. 856 7108.

Þessar upplýsingar eru birtar í samræmi við upplýsingaskyldu Arion banka hf. skv. reglugerð Evrópusambandsins um markaðssvik (MAR), þann 2025-05-27 16:58 GMT.